Auglýsing

Könnun

Kíkirðu oft hingað?

Ég og Sæmi

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Innskráningar kubbur

Laugardagskvöld - spurning að taka upp þráðinn á ný..

09. ágúst 2009 klukkan 00:43

Það er svo ótrúlega langt síðan að ég bloggaði síðast að ég ætlaði varla að trúa því þegar ég sá dagsetninguna á síðasta bloggi. Maður hefur bara verið á Facebook og ekkert spáð í því að fara að blogga svona af og til en nú skal aftur snúið í bloggheima með smá ívafi af andlitsbókinni.

Það hefur svosem ýmislegt á daga mína drifið síðan síðast, búin að eiga góðar stundir með fjölskyldunni. Hélt upp á 23ja ára afmælið mitt og það var alveg ótrúlega skemmtilegt :)
Svo er ég búin að vera að vinna í sumar, hef kíkt í eina útilegu og svo aðeins kíkt upp í bústað að vinna þar.
Annars hef ég bara verið í því að njóta þess að vera til og eyða tíma með fólkinu mínu :)

Núna er ég á Akureyri, er með Ellu Maju frænku. Erum á Handverkshátíðinni í Hrafnagili að sýna peysur sem systir hennar mömmu er að hanna og sauma. Erum bara tvær á húsbílnum og höfum það bara nokkuð gott :)
Það tekur ansi mikið á að standa í þessari mannþröng. Finnst alveg ótrúlegt hvað ég er þreytt í fótunum eftir þessu sjö tíma á dag þarna. Ég nefnilega vinn að minnsta kosti tíu tíma á dag og er standandi 95% af þeim tíma og ég finn ekki svona til í fótunum. Hefði sko átt að taka með mér vinnuskóna, man það sko næst.

Það er samt ótrúlegas skrýtið að vera svona lengi í burtu frá Sæmanum mínum. Hann er samt ekki langt undan því ég er dugleg að hringja í hann :p
Er líka dugleg að heyra í restinni af familiunni minni, verð að heyra í mömmu allavega fjórum sinnum á dag, enda mömmustelpa fyrir allan peninginn ;)

Svo er ég að byrja í skóla núna í haust, skráði mig í hárgreiðslu í Tækniskólanum. Er bæði spennt og kvíðin í bland. Veit svo sem ekkert hvað ég er að fara út í, hef bara ótrúlega gaman af því þegar mamma biður mig að laga á sér hárið þegar hún er að fara eitthvað fínt út.
Ég hef líka gaman að öllu sem gert er í höndunum, það á einhvernveginn betur við mig heldur en endalausar bækur.

Jæja, er þetta ekki komið gott í bili.

Læt heyra frá mér fljótt aftur.

- BleiksteiK - 

Elín Guðný Hlöðversdóttir
Engin athugasemd

Laugardagur - komin nót..

18. janúar 2009 klukkan 00:56

Alltaf líður þessi tími svo hratt, alveg ótrúlegt.

Það er barasta komin 17 janúar, eiginlega samt 18. því klukkan er orðin eitt eftir miðnætti.

Finnst ótrúlega stutt síðan jólin voru, ooo þau voru svo yndisleg :)

Við fórum til Danmerkur þarna yfir áramótin, eins og þið kannski vitið og það var bara rosa kósý. Skrýtið að vera í útlöndum yfir áramót, hef ekki prufað það áður. Það var samt alveg hrikalega kalt þarna úti, það er örugglega rakinn sem olli því.

Árið hefur bara byrjað vel, maður er auðvitað bara að vinna og njóta þess að vera til.

Það er ekki mikið að frétta héðan, bara allt við það sama. Ýmis verkefni í gangi og svona og maður er að vinna í hinu og þessu, kemur í ljós hvað það er þegar nær dregur :)

Ætlaði bara rétt að láta vita af mér svona fyrst ég er að hanga í tölvunni á laugardagskvöldi.

Þangað til næst.

- BleiksteiK -

 

Elín Guðný Hlöðversdóttir
2 athugasemdir

Laugadagur - fríí...

27. desember 2008 klukkan 16:31



Jæja þá er aðfangadagur liðinn og mikið rosalega var hann yndislegur :) jólabarnið ég naut mín að sjálfsögðu í botn og hafði það gott með uppáhaldsfólkinu mínu :)

Vaknaði um eitt á aðfangadag og fór heim til mömmu og pabba.
Það er hefð hjá mér eftir að ég og Sæmi fórum að búa að ég vakna um hádegi og fer til mömmu og pabba því það er svo jólalegt að vera hjá þeim og hjálpa mömmu að grja og gera og svo kemur líka svo mikið af frændfólki og vinum í jólakaffi.

Gummi og Kristján komu og bjuggu til jólasúpuna. Mamma og Kristján hjálpast að við að búa til jólasúpuna þeirra, Kristján er aðal hjálparkokkurinn, algjör snúlli :)

Um fjögur fór ég aftur heim til þess að gera mig tilbúna fyrir jólin, það var að sjálfsögðu brunað í bað og svo var alls herjar yfirhalning ;)
Við fjölskyldan höfum haft það fyrir hefð að fara í kirkju á aðfangadag klukkan sex og það var auðvitað ekki farið út af vananum núna frekar en önnur jól.
Við fórum í Bústaðakirkju og mér fannst það bara rosalega fínt :) enda á kirkjan og presturinn stað í hjarta okkar því við fórum alltaf í sunnudagamessu í Bústaðakirkju.



Aðfangadagskvöld var í alla staði yndislegt.
Við fengum rosalega góðan mat ala mamma og nutum þess að borða.
Ég fékk alveg ótrúlega mikið af fallegum og yndislegum gjöfum og get varla lýst hvað ég er ánægð og þakklát með allar gjafirnar, hverja einu og einustu gjöf :)

Við vorum svo hjá mömmu og pabba langt fram á nótt og nutum þess að slappa af og fá okkur desert og svona fínheit :)

Ég vil þakka kærlega fyrir mig og óska ykkur enn og aftur gleðilegrar hátíðar :)

Þangað til næst..

- jóla BleiksteiK -

Elín Guðný Hlöðversdóttir
1 athugasemd

Miðvikudagur - jólin :)

24. desember 2008 klukkan 01:16

Kæru vinir, nær og fjær gleðileg jól og hafið það sem allra best :)



Jólakveðja,
Ella.

Elín Guðný Hlöðversdóttir
2 athugasemdir

Mánudagur - jólajóla..

15. desember 2008 klukkan 22:40
Váááá.. ég gerði mér ekki grein fyrir því að það er meira en mánuður síðan ég bloggaði síðast.
Ótrúlegt hvað tíminn líður áfram. Það hefur sko alveg hellingur á daga mína drifið síðan síðast..



Jólin eru komin á þennan bæinn, alveg þrjár vikur síðan við skreyttum heimilið og auðvitað jólatréð líka.
Við erum búin með flest allar jólagjafir, jólakortaskrif búin og nú er bara að halda heimilinu í horfinu og njóta þess að vera til... yndislegt..


Við Sæmi fórum með mömmu, pabba, Maju systir og Auði hús á Jólatónleika Fíladelfíu. Þeir voru æðislega flottir og jólakærleikurinn algjörlega ráðandi þarna.


Sæmi bauð mömmu sinni í heimsókn á klakann og hún var hér um þar síðustu helgi, voðalega nice.


Ég eignaðist nýjan vin.. Það er nefnilega þannig að Kristrún vinkona Maju og okkar fjölskyldunnar eignaðist lítið kríli og ég og hann Tristan erum alveg að smella í það að verða bara hinir mestu mátar :)

Mamma hélt upp á afmælið sitt um síðustu helgi og það var alveg stórkostlegt. Þvílíka skemmtilega afmælið með frábærum konum og ótrúlega skemmtilegum uppákomum og bara gaman sko :)
Við stelpurnar töluðum auðvitað aðeins til mömmu, Maja systir söng og ég og Sæmi gáfum henni vidjósjów með gömlum myndum og vidjóupptökum - æðislega gaman :)
Við allavega skemmtum okkur langt fram á nótt :)

Annars er bara allt ljómandi að frétta héðan ..



Ætla nú ekki að láta líða svona langt þangað til ég blogga næst.
Endilega látið vita hverjir eru að lesa, finnst það svo rosalega gaman :)



 - Ella -
Elín Guðný Hlöðversdóttir
3 athugasemdir

Sunnudagur - senn koma jólin...

09. nóvember 2008 klukkan 22:28


Það er kominn nóvember og það líður senn að jólum. Það er notaleg tilfinning að hugsa til þess hversu stutt það er til jóla því jólin og allt sem tilheyrir þeim hlýjar mér um hjartarætur. Ég er sannkallað jólabarn eins og þeir sem þekkja mig vita.

Nú er kominn sá tími þar sem ég fer að draga fram jóladótið okkar. Við hjúin ætlum að skreyta strax eftir næstu helgi og þá verða jólin komin á þennan bæinn.
Jólagjafirnar eru líka komnar á gott skrið hjá okkur, við erum alveg rosalega tímanlega í þessu núna.. svo gott að vera með hlutina undir kontról.



Annars erum við bara búin að hafa það rosalega gott síðustu daga og vikur.

Við fórum út að borða fyrir nokkru síðan á Fiskimarkaðinn. Sæmi átti gjafabréf síðan á síðustu jólum og við ákváðum að nota það svona áður en það rynni út. Þetta var virkilega notaleg kvöldstund þarna og við fengum alveg dýrindis mat og góða þjónustu.. enda kostaði þetta líka sitt ;)

Við erum svo búin að taka að okkur smá aukavinnu og vorum þar af leiðandi að vinna í gær. Ég verð nú að segja að við stóðum okkur með stakri prýði ;)
Við áttum að vera að vinna til átta í gærkvöldi en mamma kom og leysti okkur af klukkan sex því Sæmi fékk boðsmiða í leikhús.
Við fórum að sjá Vestrið eina, fín sýning og svartur húmor og maður gat hlegið af ýmsu en ótrúlega löng.. eiginlega einum of löng.

Dagurinn í dag var svo tekin í það að sofa út, svaf til hádegis og horfði á Nágranna.. alltaf gaman að horfa á þá. Við fórum svo á fætur og kíktum aðeins út og svo átti ég tíma í svæðanudd. Það er virkilega gott, hjálpar mér bæði að vinna á höfuðverkjunum sem hrjá mig af og til og verkjum í hnjám sem hafa verið að bögga mig síðan ég man eftir mér.. örugglega eitthvað ættgengt því mamma hefur verið svona alveg síðan hún var barn.



Held það sé ekki meira í bili.. vonandi líður ekki á löngu þar til ég skrifa næst.
Verið nú svolítið duglegri við að skrifa skoðun hjá mér ... það gleður litla hjartað mitt :)



- BleiksteiK -
Elín Guðný Hlöðversdóttir
5 athugasemdir

Sunnudagur - letilíf...

12. október 2008 klukkan 22:44



Rosalega eru sunnudagar kósý dagar.. ég er búin að hafa það rosalega kósý og gott í dag og líður bara vel í dag.

Helgin er búin að vera fín.. var reyndar eitthvað slöpp á föstudagskvöldið og gat ekkert sofið og vaknaði svo snemma á laugardeginum og við familían fórum austur í gamla sumarbústaðinn okkar að taka til í gámum sem við eigum þar. Við vorum rosa dugleg og fylltum sendiferðabílinn af dóti, fundum ýmislegt í þessum gámum.. þar á meðal gömlu Nintendo tölvu okkar systra og við skötuhjú erum búin að skemmta okkur vel í henni.

Þegar við vorum búin að gámast þá ákváðum við að kíkja á nýja sumarbústaðinn okkar sem er smá spöl frá. Þegar við vorum hálfnuð sprakk á öðrum bílnum hjá okkur og það þurfti að kippa því í liðinn. Karlmennirnir í fjölskyldunni voru snöggir að redda því :)

Kvöldið var svo bara tekið í afslappelsi enda allir lúnir eftir annasaman dag :)



Dagurinn í dag hefur svo bara einkennst ef kósý heitum.

Ég er ekki beint í blogg stuði og veit ekki hvað ég á að hripa hér niður..



Hafið það bara gott þangað til næst..



- Ella -

Elín Guðný Hlöðversdóttir
3 athugasemdir

Mánudagur - þjóðargjaldþrot...

06. október 2008 klukkan 22:58



Ástandið í þjóðfélaginu er ekki beint til að hrópa húrra fyrir, þvílíkt og annað eins ástand hef ég bara ekki upplifað. Það er kannski ekki skrýtið þar sem Ísland hefur ekki gengið í gegnum annað eins stöðuleikatímabil líkt og einkennt hefur síðustu ár þannig að það má segja að maður hafi bara lifað í rólegheita þjóðfélagi þó svo að allt hafi verið á útopnu.

Það er ekki hægt að kveikja á sjónvarpi, útvarpi, netmiðlum eða hitta fólk nema að kreppa og þjóðargjaldþrot sé aðal umræðuefnið.
Ég má þakka fyrir það að vera frekar bjartsýn manneskja og hörð af mér því annars væri ég líklegast bara komin undir sæng með eyrnatappa í eyrunum..

Mér finnst líka rosalegt þegar ríkisstjórninni er kennt um öll herlegheitin. Svo má Davíð blessaður ekki opna á sér munnin því þá er hann bara kaffærður. Hann er sá eini sem hefur þorað að segja eitthvað og sagt eitthvað af viti.

Það ætti að fletta ofan af þessu öllu sýna þjóðinni hverjir er sökudólgarnir eru í þessu öllu. Það eru að mínu mati nokkrir "stór-kallar" sem hafa hrundið þessu öllu af stað. Þeir hafa bara getað leikið sér eins og litlir strákar í bílaleik og nú er svo komið að það er engu viðbjargandi.

Það er búið að vara við erfiðu efnahagsástandi í tvö ár. Geir og fleiri hafa bent þjóðinni á að það hafi verið kominn tími til að hægja á og fara að spara og hætta að eyða eins og enginn sé morgundagurinn en enginn hlustar. Það hugsuðu allir "það kemur engin kreppa á Íslandi" ..



En svona þrátt fyrir slæmt ástand í þjóðfélaginu þá líður mér og mínum bara vel :)

Helgin var yndisleg, við skötuhjú áttum góða "afslappelsis" helgi og sváfum og höfðum það gott.



Það styttist bara óðum í jólin, átta tíu og eitthvað margir dagar.. jii hvað þetta er fljótt að líða.. ég hlakka að vanda mikið til jólanna enda jólabarn alveg inn úr og útúr :D



Annars segi ég nú ekki margt ..

Þangað til næst..



- Ella -

Elín Guðný Hlöðversdóttir
2 athugasemdir

Föstudagur - hmmm já...

26. september 2008 klukkan 23:00

Hmm já, hvernig væri það nú að koma með eins og eitt stykki nýja færslu...



Ég veit samt ekkert hvað ég á að blogga um eða hverju ég á að segja frá..
Kannski bara aðeins að stikla á stóru og láta vita að maður er ekki alveg hættur að blogga ;)

Það er búið að vera rigning síðustu mánuði, já ég er ekki að grínast.. þvílíkt og annað eins!



Annars er ég bara í vinnunni svona mest megnis.
Eftir vinnu er svo bara farið heim, eldað og notið lífsins þess á milli.



Það eru allir farnir að hlakka til vorsins, hvað varð um það að hlakka til jólanna?
Ég hlakka til jólanna, hlakka til að fá snjóinn, hlakka til að fara huga að jólakortum og jólaskreytingum :) aaa hvað það verður nice..



Maja systir lenti í bílslysi um síðustu helgi og ég þakka Guði fyrir að þetta fór ekki verr.
Bíllinn ónýtur og hún eitthvað löskuð blessunin.
Hafið það að leiðarljósi að aka varlega! :)



Fór á Mamma Mia sing a long fyrir viku með systrum mínum og Kristrúnu.
Það var alveg rosalega skemmtilegt enda góður félagsskapur og svo gat maður sungið og dillað sér með lögunum.
Ekki amalegt það :)



Annars er ég bara glöð yfir að það er komin helgi.. ætla að taka þessa helgi með trompi og svo verður familíu-dinner á morgun... ekki leiðinlegt :)



En þangað til næst.. hafið það gott og ekki gleyma að skrifa skoðun, sama hver þú ert!



- BleiksteiK-

Elín Guðný Hlöðversdóttir
4 athugasemdir

Þriðjudagur - nýr mánuður..

02. september 2008 klukkan 19:28


Jæja það er aldeilis, bara komin september..

Það er bara allt við það sama hjá mér, sem er bara gott.. engar fréttir eru góðar fréttir ;)



Pabbi átti afmæli föstudaginn síðastliðinn og þá fórum við hele familían á Blesastaði að kveðja Hemma, Röggu og Hildi Kristínu því þau eru að flytja út til Ítalíu.

Helgin var svo bara tekin rólega..

Ég er bara á fullu að vinna, nóg að gera og svo er maður bara að hafa það gott þess á milli.

´

Næst á dagskrá er svo afmæli hjá Maju systir, hún er að verða tvítug stelpan.. :)

Maður er svona aðeins að undirbúa það með henni, reyna allvega :p



Ætlaði nú ekki að hafa þetta langt í þetta skiptið..
Bara láta vita að ég er ekki hætt að blogga ;)



- BleiksteiK -
Elín Guðný Hlöðversdóttir
4 athugasemdir